CAB Plan Damage Inspection
Með vefkerfi til bókunar í tjónaskoðun getur viðskiptavinurinn, þ.e. eigandi ökutækis, sjálfur bókað tíma í tjónaskoðun. Þegar bókunin er gerð er hún svo skráð beint í CAB Plan.
Með þessari þjónustu fær verkstæðið aðgang að vefsíðu sem er sniðin að þörfum viðskiptavinarins og einfaldar alla notkun viðskiptavinanna, um leið og hún sparar tíma. Þetta hentar bæði sjálfstætt starfandi tjónaverkstæðum og verkstæðiskeðjum.
Þjónustan tryggir verkstæðinu vefgátt þar sem má með einföldum hætti setja inn og vinna með:
- Lógó fyrirtækisins
- Mynd af fyrirtækinu
- Tengil á bókunarsíðuna
- Aðgang að ökutækjaupplýsingum frá þriðja aðila
- Samþykkja eða hafna verkstæðum sem tjónaskoðunarfyrirtækjum
Þegar vefsíðan er tilbúin er hægt að setja veffang á heimasíðu verkstæðisins sem
viðskiptavinurinn getur smellt á til að fara í tjónaskoðunarbókunarkerfið.
Við bókun á tjónaskoðun þarf viðskiptavinur að:
- Færa inn skráningarnúmer
- Gefa upp staðsetningu (á aðeins við um fyrirtækjalausnir)
- Velja tjónaverkstæði (á aðeins við um fyrirtækjalausnir)
- Velja tíma og dagsetningu tjónaskoðunar
- Veita upplýsingar um eiganda/ökumann og símanúmer
- Fá senda staðfestingu á bókun með SMS eða í tölvupósti