CAB - optimizing the line

Stefna cab um kökur

Hjá CAB Group AB („CAB“) notum við kökur og sambærilegar tæknilausnir (í sameiningu nefndar „kökur“) á vefsvæðinu okkar til að gera upplifun þína enn betri. Við notum kökur meðal annars til að einfalda og aðlaga vefsvæðið að þörfum, valkostum og áhugasviði notandans. Hér á eftir skýrum við nánar hvernig við notum kökur og hvaða valkosti þú getur nýtt þér fyrir kökurnar á vefsvæðinu okkar.

Þegar CAB notar kökur getur það falið í sér vinnslu persónuupplýsinga um notandann. Þú getur kynnt þér nánar hvernig við vinnum með persónuupplýsingar í persónuverndarstefnu okkar.

Hvað eru kökur?

Kökur eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á borðtölvunni þinni, símanum eða spjaldtölvunni (sameiginlega nefndar „tölva“). Kökunum er komið fyrir af okkur eða af einhverjum samstarfsaðila okkar og gera kleift að framkvæma grunnaðgerðir á vefsvæðinu okkar, en innihalda einnig upplýsingar sem auðvelda okkur að bæta upplifun þína af vefsvæðinu og sérsníða auglýsingar á öðrum vefsvæðum.

Kökur hafa mislangan líftíma. Langtímakökur vista skrá á tölvunni þinni í tiltekinn tíma. Að þeim tíma liðnum er kökunum eytt úr tölvunni og þær verða svo búnar til aftur næst þegar þú heimsækir vefsvæðið. Hin gerðin kallast lotukökur, en þær eru aðeins geymdar í minni tölvunnar á meðan þú ert að nota vefsvæðið. Lotukökum er eytt þegar vafranum er lokað.

Hvers vegna notum við kökur?

Við notum kökur til að auðkenna þig sem einkvæman notanda og auðvelda þér um leið að nota vefsvæðið. Kökur sjá til þess að vefsvæðið geti munað kjörstillingarnar sem þú notaðir til að þú þurfir ekki að endurtaka valið í hvert sinn sem þú notar vefsvæðið. Kökur eru einnig notaðar til að safna tölfræðilegum upplýsingum og öðrum upplýsingum um fjölda notenda á vefsvæðinu og þær vefsíður sem þeir fara á. Þessar tölfræðiupplýsingar gegna veigamiklu hlutverki í þróunarstarfi okkar fyrir vefsvæðið.

Hvers konar kökur notar cab?

Til að veita þér upplýsingar um kökurnar sem við notum á vefsvæðinu, og auðvelda þér þannig að stjórna því hvaða kökur má nota þegar þú notar vefsvæðið okkar, höfum við skipt kökum í þrjá mismunandi hópa, eftir því í hvaða tilgangi þær eru notaðar.

Nauðsynlegar kökur/aðgerðakökur

Tilteknar kökur eru nauðsynlegar til að hægt sé að bjóða upp á ýmsar aðgerðir á vefsvæðinu. Þetta eru kökur sem við notum til að vefsvæðið virki rétt og það er ekki hægt að loka fyrir notkun þeirra í kerfinu okkar. Þær eru yfirleitt vistaðar í kjölfar aðgerða sem þú framkvæmir og sem fela í sér beiðni um þjónustu, t.d. persónuverndarstillingar, innskráningu eða að fylla út eyðublöð.

Kökur

Notist fyrir

Vistun

JSESSIONID (virknikökur)

Vefsvæði sem byggir á SiteVision notar lotukökur sem kallast „JSESSIONID“ til að auðkenna innskráða notendur og tryggja nauðsynlegar heimildir. Kökurnar eru búnar til af vefþjóninum Tomcat og notaðar til að tengja notandann við lotu. SiteVision notar síðan lotuna í margskonar tilgangi sem tengist notandanum. (SiteVision)

Lota

sv-uts

(virknikökur)

Langvarandi kökur „sv-uts“, sem eru geymdar í 1 ár í þeim tilgangi að tengja notandann sjálfkrafa við fyrri heimsóknir á vefsvæðið. Notaðar til að sníða innihaldið á síðunni að þörfum notandans. (SiteVision)

1 ár

SiteVisionLTM

(virknikökur)

Í SiteVision Cloud er notuð einkvæma kakan SiteVisionLTM. Hún er notuð til að stilla álagsjafnvægi, í því skyni að stjórna því hvaða bakgrunnsþjóni biðlarinn á að tengjast. (SiteVision)

Lota

Cookienotification

(virknikökur)

Stilling sem er valin þegar notandi samþykkir kökur, notuð til að fylgjast með því að notandi hafi samþykkt kökur. (SiteVision)

Lota

accptCookie

(virknikökur)

Stilling sem er valin þegar notandi samþykkir kökur, notuð til að fylgjast með því að notandi hafi samþykkt kökur. (SiteVision)

1 ár

Greiningarkökur

Slíkar kökur veita upplýsingar um með hvaða hætti vefsvæðið er notað og gerir kleift að viðhalda, keyra og bæta upplifun notandans.

Kökur

Notist fyrir

Vistun

_ga

(greiningarkökur)

Notaðar til að safna upplýsingum um notandann, þær síður sem hann heimsótti og hve lengi, hvernig notandinn fann vefsvæðið og hvort hann hefur heimsótt það áður. (Google Analytics)

2 ár

_gid

(greiningarkökur)

Notaðar til að safna upplýsingum um notandann og til að greina mismunandi notendur hvern frá öðrum. (Google Analytics)

24 klst.

_gat

(greiningarkökur)

Notaðar til að takmarka fjölda fyrirspurna sem hægt er að senda innan afmarkaðs tíma. (Google Analytics)

10 mín.

_hjIncludedInSample

(greiningarkökur)

Þessar kökur tilgreina að lotan þín hafi verið vistuð í stillingu fyrir uppsöfnuð gögn sem sýna fram á með hvaða hætti notandinn notar vefsvæðið. (Hotjar)

Lotumiðað

_hjMinimizedPolls (greiningarkökur)

Notaðar til að sýna okkur að þú hafir afþakkað að svara könnun sem við gerum og sjá til þess að við munum ekki biðja þig aftur að svara könnuninni. (Hotjar)

1 ár

_hjDonePolls

(greiningarkökur)

Notaðar til að sýna okkur að þú hafir fyllt út eyðublað sem við leggjum fyrir notendur og sjá til þess að við munum ekki biðja þig aftur að fylla út það eyðublað. (Hotjar)

1 ár

_hjid

(greiningarkökur)

Þessar kökur eru búnar til þegar notandinn kemur í fyrsta skipti á vefsíðu sem notar Hotjar-forskrift. Þær eru notaðar til að viðhalda notandakenni Hotjar-notandans, sem er einkvæmt fyrir þetta vefsvæði í vafranum. Þannig er tryggt að hegðun notanda í næstu heimsóknum á sama vefsvæði verði tengd við sama notandakennið. (Hotjar)

1 ár

Kökur frá þriðju aðilum

Kökur frá þriðju aðilum eru settar inn af öðrum aðila en þeim sem er ábyrgur fyrir vefsvæðinu Tilgangurinn er að vista hegðun þína sem notanda og hvernig þú ferð milli mismunandi vefsvæða. Þessar kökur innihalda upplýsingar um þína virkni og með hvaða hætti notkun þín á vefsvæði okkar tengist þínu áhugasvæði og samstarfsaðilar okkar nota þær til að birta þér sérsniðnar auglýsingar um vörur okkar þegar þú heimsækir önnur vefsvæði.

Til að skilja og greina með hvaða hætti notendur nýta sér vefsvæðið okkar beitum við verkfærinu Google Analytics. Upplýsingarnar sem kökur sem Google Analytics býr til innihalda eru geymdar á netþjónum hjá Google og IP-talan þín verður stýfð. Við notum kökur til að öðlast aukinn skilning á því hvernig notendur nota vefsvæðið, til að við getum gert úrbætur eftir þörfum. Upplýsingarnar eru einnig notaðar í markaðssetningarskyni. Google er heimilt að flytja upplýsingarnar sem eru geymdar til þriðja aðila ef þess er krafist samkvæmt lögum, eða ef þriðji aðili vinnur úr upplýsingunum á kostnað Google.

Við notum einnig upplýsingar af Facebook til að mæla árangur af auglýsingum og beita eltiauglýsingum á Facebook.

Kökur

Notist fyrir

Vistun

_fbp

(þriðji aðili)

Þessar kökur aðstoða okkur að birta auglýsingar á Facebook, eða á stafrænum vettvangi á vegum Facebook Advertising, til einstaklinga sem þegar hafa heimsótt vefsvæðið okkar. (Facebook)

3 mán.

Samþykki og þín meðhöndlun á kökum

Samkvæmt lögum um rafræn samskipti verða allir sem nota vefsvæði þar sem notaðar eru kökur að fá upplýsingar um það og um notkun á kökum. Notandi vefsvæðis skal einnig samþykkja notkun á kökum, bæði almenna notkun á kökum sem og notkun á kökum í sértækum tilgangi. Þú samþykkir notkun CAB á kökum á borða sem birtist í fyrsta sinn sem þú ferð inn á vefsvæðið okkar sem þessi stefna um kökur nær til.

Með því að breyta stillingum í vafranum þínum eða tækinu þínu getur þú einnig stjórnað notkun og umfangi á kökum, fengið upplýsingar um þær kökur sem eru vistaðar og eytt vistuðum kökum. Farðu í stillingarnar á vafranum eða í tölvunni til að kynna þér hvernig á að breyta stillingum fyrir kökur. Þú getur til dæmis valið að loka alveg fyrir kökur, að samþykkja aðeins sumar kökur eða að eyða kökum í hvert sinn sem vafranum er lokað.

Hafðu í huga að ef lokað er fyrir kökur eða þeim eytt er hugsanlegt að einhverjar aðgerðir á vefsvæðinu virki ekki sem skyldi. Ef þú velur að heimila ekki kökur þriðju aðila er líklegt að auglýsingar sem birtast þegar þú ferð á önnur vefsvæði höfði síður til þín.

Hafa samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi notkun okkar á kökum er þér velkomið að hafa samband við okkur:

Hafa samband