Verktakar

Gerðu tilboð og sýndu nákvæmlega fram á fyrir hvaða verkliði þú rukkar

Meps gerir skilvirkni þína bæði sýnilega og ábatasama

Sem verktaki getur þú gert tilboð og sýnt nákvæmlega fram á fyrir hvaða verkliði þú rukkar. Og þú færð greitt fyrir það vinnumagn sem þú framkvæmdir, ekki fyrir tímann sem verkið tók. Á þennan hátt verður skilvirkni þín bæði sýnileg og ábatasöm.

Meps setur af stað opið samtal á milli pöntunaraðila og framkvæmdaaðila

Umfang og verð verkefnisins er gegnsætt og liggur skýrt fyrir áður en framkvæmdir hefjast og þannig er hægt að komast hjá ágreiningi. Auk þess er hægt að aðlaga verkefnið að óhjákvæmilegum frávikum án þess að nýtt tilboð sé lagt fram, því að þegar hefur verið samið um skilyrði sem snúa að verkliðum sem bætast við eða detta út.

Meps leiðir af sér skilvirkari verktaka og það kemur faglegum aðilum til góða

Lykilatriði í Meps er að ekki er gengið út frá vinnustundum heldur magni framkvæmda. Við höfum°búið til staðal þar sem magn framkvæmda er metið í stað þess að horft sé á lægsta tímakaupið – það er þetta sem skapar heilbrigðar markaðsaðstæður. Með þessum hætti verður ekki hægt að vinna útboð með því að lækka tímakaupið niður úr öllu valdi, eins og ófaglegir aðilar gætu viljað gera.

Með Meps er tryggt að aðalverktakinn ræður ferðinni

Með því að nota Meps gerir þú reksturinn á eigin fyrirtæki auðveldari og minnkar stjórnunarkostnað á sama tíma. Reikningagerð og áætlanagerð gengur hraðar fyrir sig.

Meps ýtir undir heilbrigða samkeppni

Allir vinna út frá raunverulegu umfangi hvers verkefnis og það gefur duglegum og skilvirkum verktökum samkeppnisforskot.